What´s up with me, myself and I... well just find out for yourself!
Bandaríski skólinn minn
Skemmtilegt...
12.11.2005 15:41:25 / Gyda

Nýtt blogg!

Heyriði mig nú, ég er komin með nýtt blogg og slóðin er www.blog.central.is/gydahlin . Veriði nú dugleg að kíkja á mig eins og alltaf, kei :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.11.2005 14:15:14 / Gyda

Allt á leiðinni í rétta átt

Mér líst rosalega vel á þessa dælu og það hefur altt gengið mjög vel með hana og þetta er miklu minna mál en ég hélt einhvernveginn. Þannig að ef þið viljið spyrja um eitthvað núna þá er ég á leiðinni að verða sérfræðingur í þessum málum! Og svo byrjaði ég í einkaþjálfun á mánudaginn og líst líka mjög vel á það, er einmitt búin að fara 3x í ræktina í þessari viku og á eftir að fara a.m.k. 2x í viðbót svo er ég hætt að borða nammi og kökur og allan þanmn óbjóð fram að jólum allavega!! hehe. Þannig að það er bara harkan sex núna :) Gangi mér vel, takk takk :) :)

» 4 hafa sagt sína skoðun

26.10.2005 13:47:41 / Gyda

Hvað er ég að fara að gera... ?

Heyriði, á morgun er ég sem sagt að fara að fá insúlíndælu. Ekki spyrja mig neitt um það ennþá, því ég hreinlega veit ekkert um það annað en að ég þarf sem sagt ekki að sprauta mig lengur þannig að þetta verður að sumu leyti auðveldara. En þetta er samt hrikalega flólkið eitthvað, ja svona við fyrstu sýn allavega. Fékk dæluna í hendurnar á mánudaginn og er búin að vera aðeins að fikta í henni og reyna að lesa 100 bls. bæklinginn sem fylgir með henni! En svo á morgun kl. 10 fer í 4 klst. prógram þar sem 2 klst. verða teknar í að útskýra fyrir mér hvernig þetta allt virkar og svo 2 klst. sem fara í að setja hana upp og allan þann pakka. Þannig að vonandi eftir morgundaginn get ég sagt ykkur aðeins meira frá þessu! Þangað til vona ég bara að þetta gangi allt vel... bless í bili :)

» 4 hafa sagt sína skoðun

19.10.2005 15:55:16 / Gyda

helu

þá er ég komin aftur heim og farin að vinna á Laugarkaffi aftur og allt er bara orðið back to normal eins og maður segir á úglenskunni:) Það var annars alveg frábært úti! Um 30 stiga hiti allan tímann... ekki að það sjáist á mér samt hehe. En svo náði ég að hitta nánast alla sem mig langaði að hitta... gömlu kennarana mína, bróður pabba og var hjá honum í 3 daga og svo flesta vini mína. Ég missti mig aðeins í búðunum og hef sjaldan skemmt mér eins vel að versla, sérstaklega þegar ég tók Aaron homma vin minn með mér, það var algjör snilld! Þá löbbuðum við inn í búðir og hann sendi mig inn í mátunarklefann og fór og fann handa mér föt og svo hélt hann á öllum pokunum fyrir mig! Það gerist ekki mikið betra, bara að allir karlmenn væru svona :) Náði að versla 3 iPoda takk fyrir (ekki alla handa mér NB!) og held að það teljist helst til tíðanda og já myndavélin mín líka sem ég var búin að segja ykkur frá. Og svo keypti ég mér geðveik leðurstígvél og er bara að bíða eftir tækifæri til að nota þau. Og svo náttla fullt af fötum, 2x gallabuxur, jakka, nokkrar peysur, hlýraboli, nærföt, pumaskó og svo náttla tyggjó og nammi í fríhöfninni! Og jú keypti hnetur handa mömmu og hægðalyf handa ömmu!! hehe, það eru nú margir búnir að hlægja yfir því, en svona er maður nú góður í sér! :) Jæja helstu fréttir af mér eru að ég er að fara að byrja í einkaþjálfun mjög líklega hjá Sölva Fannari og get ekki beðið. Og svo er Magga að fara í keisaraskurð á föstudaginn, hlakka ekkert smá til að sjá litlu krílin og gangi þér vel Magga mín. jamms, segi þetta gott í bili. Bless bless :)

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.10.2005 20:27:24 / Gyda

Gay people and some more craziness!

Gay guys, ja tad er buid ad vera malid hja mer sl. solahringinn. Teir eru finir, skemmtilegir, endalausir studboltar, oftast alltof fallegir, en eina vandamalid er ad teir eru hommar!! Af hverju?!! Ja, er sem sagt hja honum Aaroni vini minum og hann byr med vini sinum sem er hommi og svo a hann Aaron kaerasta sem er ad sjalfsogdu lika hommi8| hehe. Tannig ad tad er buid ad vera mikid stud hja mer :D Ja og var i San Francisco a laugardaginn og for i "the gay district" sem er tad staersta i USA, tannig ad eg er heldur betur buin ad fa minn skammt af tessu skemmtilega folki!:haha:

Er annars buin ad versla og versla adeins meira og svo pinulitid i vidbot... og eg er ekki buin ennta, a heila 2 daga eftir!! Eg er samt svo oendanlega fegin ad eg akvad ad koma ekki hingad aftur i skola. Tad er bara einhver outskyranleg otaegileg tilfinning sem eg fae a koflum tegar eg er tarna og je minn hvad eg er anaegd ad geta farid aftur heim til Islands og vera bara i heimsokn herna!

uffuff, og svo er alltaf eitthvad drama i kringum folkid sem eg tekki herna, serstaklega Aaron! Brodir bestu vinkonu hans Amondu framdi 2 mord fyrir taepu ari sidan og tad komst upp daginn adur en eg kom hingad, tannig ad tetta er buid ad vera soldid crazy. Hann er i fangelsi nuna og faer orugglega daudadom og Amanda var herna hja okkur i gaer og vid vorum ad horfa a tatt um tessi mord i sjonvarpinu og je minn, tetta er rosalegt. Va madur, tetta er bara alltof skritid. Ef tid farid a google getidi slegid inn Eric Matthew Copple og ta faid tid tetta allt beint i aed.

En allavega verd eg fegin ad koma heim, to tad se alltaf gaman i utlondum! En heima er bara alltaf best, it's true :D


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.10.2005 06:14:08 / Gyda

I love travelling...! and shopping!!!!

Hihi,

ja ta er eg aftur stodd i henni Kaliforniu og aetladi bara rett ad heilsa ykkur. Tad er frabaert ad vera komin hingad aftur, serstaklega tar sem eg veit ad eg er bara i sma heimsokn!! Er buin ad hitta barasta alla sem eg tekki a gamla skolanum minum PUC og tad er buid ad vera alveg frabaert!! Akkurat nuna er eg svo i heimsokn hja brodur pabba og fjolskyldu hans sem bua i ca. 3ja klst. akstri fra skolanum. Eg er buin ad vera her i mjog godu yfirlaeti og er buin ad versla i allan dag og man alive! eg vissi ekki ad tad gaeti verid svona gaman!!!! Er gjorsamlega buin ad vera ad missa mig en a samt eftir ad versla alveg helling i vidbot! Er t.d. buin ad kaupa mer alvega ogedslega flotta myndavel! ja og for i Victoria secret i dag og keypti mer tvo "push-up bras", sem er nattla algjort must:D hehe :D Ja og svo er eg buin ad versla soldid handa systkinum minum og ju, keypti harvorur fyrir um 7-8 tus kall takk fyrir! Uff, tad er sko gaman ad tessu! Jaeja, aetladi bara rett ad lata vita af mer, tad gengur allt vel og eg er ekki ordin alveg blonk ennta, tannig ad tetta er i godu lagi :) En hafidi tad nu gott i kuldanum heima, uff, ofunda ykkur sko ekki! en bless i bili

kvedjur ur solinni i California 8) 8) 8) 8) hehe  


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.09.2005 11:55:52 / Gyda

Gone to America...

Hæbbs! Er á leiðinni út til San Fran á eftir og verð í 2 vikur!!! Jeieiei! Ætla bara að segja bless og við sjáumst þegar ég kem heim. Og hann Gunni sæti sem er að vinna með mér biður að heilsa ykkur, kei bæ :)

» 4 hafa sagt sína skoðun

22.09.2005 15:39:49 / Gyda

Klukk... !

Jæja, ég hef ákveðið að taka "klukk" áskoruninni sem ég fékk frá bæði Siggu Svönu og Nönnu og skrifa 5 merkilegar staðreyndir um mig!

#1. Ég hef ekki séð eina einustu StarWars mynd og hef enga löngun til þess!

#2. Ég á eftir að sakna hennar Esterar alveg óendanlega mikið þegar hún flytur til Ítalíu því hún er alveg yndislega frábær, sniff.

#3. Ég er búin að vera alveg einstaklega pirruð í skapinu alla þessa viku og það eru nokkrar ástæður fyrir því, sérstaklega ein....

#4. Ég ég gjörsamlega búin að vinna yfir mig þennan mánuðinn og samkvæmt mínum útreikningum mun ég hafa unnið 235 klst. þennan mánuðinn! Geri aðrir betur :)

#5. Ég sem stundum ljóð og það nýjasta sem ég samdi í gærkvöldi hljómar svona:

HVAÐ ER ÁST?

Í hjarta mér brennur eitthvað.

Eitthvað sem ég á en langar að gefa

Langar að gefa það fátæklingnum á götunni,

Manninum með stafinn sem labbar einn yfir götuna,

Konunni í næsta húsi sem er einstæð með 3 börn,

Manninum sem missti konuna sína í bílslysi í gær,

Stelpunni sem var að greinast með krabbamein og finnst lífið mjög erfitt,

Konunni sem var að horfa á eftir manninum sínum fara í stríð og veit ekki hvenær hún mun sjá hann aftur.

Og þér sem ert svo ótrúlega góður og fallegur….

Og þessi óútskýranlegi bruni hjartans er mitt frjálsa framlag til heimsins.

Lítið bros í amstri dagsins, vingjarnlegt augnatillit, innilegt handtak, létt snerting, faðmlag, hlýleg orð…..

Það þarf oft á tíðum ekki mikið til að feykja burtu skýjunum á himni sálarinnar og ég vil trúa því að heimurinn sé örlítið betri staður vegna mín.

En ekki bara vegna mín heldur einnig vegna þín og vegna þessa óútskýranlega fyrirbæris sem kallast ást.

Og hana vil ég gefa þér mest af öllu, því ég veit þú þarfnast hennar alveg jafnmikið og ég. Og saman munum við gera heiminn að betri stað.

Já þar hafiði það! hehe, ég get líka komið á óvart stundum ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.09.2005 19:50:33 / Gyda

well, well

jæja,
ég ákvað að skella í eina blogg færslu svona til tilbreytingar! Það er nú ekki mikið að frétta þessa dagana því ég á mér ekkert líf, þ.e.a.s. fyrir utan vinnuna. Er á 12 tíma vöktum hérna á Laugakaffi 5 daga vikunnar en er reyndar í fríi um helgar sem er yndislegt. En ég verð ánægð um mánaðarmótin!! Man alive! :) :)

Já og svo er ég víst á leiðinni út til San Francisco eftir 2 vikur og þá verður sko verslað! Ég ætla sko á fjárfestingarfyllerí eins og maðurinn sagði ! ;) Já og svo er líka annað soldið spennandi fram undan, ja allavega held ég það. Ég er sem sagt með sykursýki eins og flestir vita og er að fara að fá insúlíndælu í endann október. Þetta er sem sagt frekar nýtt á Íslandi, um 15 manns komnir með þetta en þetta þýðir sem sagt að ég verð með slöngu og lítið tæki á mér alltaf, ja nema þegar ég fer í sund eða sturtu en þarf samt ekki að sprauta mig. Þannig að það verða plúsar og mínusar við þetta pottþétt og þetta verður örugglega soldið skrítið en hlakka samt til að prófa þetta. Já langaði bara að deila þessu með ykkur og látiði nú aðeins í ykkur heyra elskurnar. Og Mæsa mín, til hamingju með afmælið um daginn!

bless bless sætulínur og snúðar
kiss kiss :)

» 6 hafa sagt sína skoðun

04.09.2005 15:54:42 / Gyda

Og svona var það nú... ! eða hvað? er bara komin í ruglið, hehe.

Hæhæhæ:)

Núna er ég komin suður í höfuðborgina og byrjuð að vinna á "good old" Laugakaffi. Það er fínt að vera komin aftur, fullt af gömlum vinalegum andlitum og mér finnst eins og ég sé komin rúmlega hálft ár aftur í tímann. Það hefur sem sagt lítið breyst og það sem hefur breyst finnst mér flest vera til batnaðar. Samt eru það búin að vera smá viðbrigði að byrja að vinna "standandi" vinnu aftur þar sem ég er búin að sitja á rassgatinu fyrir framan tölvu í allt sumar. Lappirnar mínar eru sem sagt ennþá að venjast þessu nýja álagi og breyttum lifnaðarháttum og eru búnar að mótmæla hástöfum þessa vikuna en vonandi fer það allt að lagast :S Já og svo er ég búin að fá mér kort í baðstofuna og þvílík sæla! Vá, ég gæti verið þar heilu og hálfu dagana! Þannig að ég fer þangað reglulega til að endurnýja kraftana  :P

Nú svo er ég loksins búin að ákveða framhaldið, ja allavega í megindráttum. Verð sem sagt að vinna á Laugakaffi allan september eins og brjálæðingur NB og svo var ég að panta mér far til San Francisco 28. september og kem heim 12. október :) :) :) Varð bara að nýta mér frímiðann minn sem ég átti inni og svo ætla ég að fara og ná í dótið mitt sem ég skildi eftir og heimsækja nokkra ættingja sem ég á þarna og að sjálfsögðu að heimsækja gamla skólann minn og vini mína þar.. já og svo ætla í að VERSLA!!!!! Vá, ég á örugglega eftir að missa mig! hehe, vantar ALLT! (já eða þannig.. hehe þið vitið hvað ég meina) Og ef ykkur vantar eitthvað sem fæst ódýrt í USA þá látiði mig bara vita, það er örugglega hægt að redda því:) Já og svo þegar ég kem heim ætla ég aftur norður. Hef ekki hugmynd um hvað ég fer að gera, er allavega ekki komin með neina vinnu, en miðað við framboð á vinnu þessa dagana þá ætla ég ekki að hafa of miklar áhyggjur. Í versta falli færi ég að þrífa einhversstaðar en þetta er nú bara fram að jólum þannig að það reddast nú alveg. En já, þetta er framtíð mín í megindráttum næstu mánuðina og þetta leggst bara ágætlega í mig.

Og svo var snilldarkvöld í gær, hún Ester sætasnúlla á nebbla afmæli á morgun og við fórum sex vinkonurnar og Pétur út að borða á Austur Indíafélagið og fengum snilldargóðan og soldið bragðsterkan mat! Og heimsins besta hvítlauksnanbrauð, mmmm, vá það var svo gott:) Og svo var partý að gömlum sið í Mávahlíðinni sem endaði með bæjarferð þar sem að sumir ... hmmm, engin nöfn nefnd (ekki ég samt!) voru að hözla og ætlaði allt að verða vitlaust hjá vikonum þeirrar ágætu stúlku sem heitir A... ja, bíddu, var ég að segja eitthvað, ha? ha?!! 8) Já það var sem sagt mikið stuð hjá okkur og svo gisti ég uppí hjá henni Önnu minni í nótt og er búin að vera í Mávahlíðinni í dag að láta elda ofan í mig grænmeti og meira grænmeti! Umm, yndislegt! Og já, fyrst ég er byrjuð að tala um mat þá er ég sem sagt byrjuð á danska kúrnum, og fyrir ykkur hin sem ekki vita hvað það er þá er það matarkúr sem byggir mestmegnis á að borða grænmeti og ávexti og annan mjög hollan mat. Já og eftir eina viku á þessu kúr er ég búin að missa eitt og hálft kíló, þannig að þetta virkar! takk takk :):) En það verður spennandi að sjá hvað Sif, Pétur, Anna og Sigga eru búin að missa mikið, því það er innbyrðis keppni hjá okkur og vegleg verðlaun í boði, heheh :)

jæja, vá er þetta ekki að verða komið gott í bili... ég held það bara! Ester mín til hamingju með afmælið á morgun og þið hin, til hamingju með að vera til:) Þið eruð yndisleg. Bless í bili xxxxxxxxxxxxx


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.08.2005 23:23:58 / Gyda

jamms og jæja

hæhæ sætulínur og snúðar

þá er minn síðasti dagur sem læknaritari liðinn og ég get sagt að ég er reynslunni ríkari. Þetta var ekki skemmtilegasta vinna sem ég hef unnið við en ég er gjörsamlega komin í sjúkrahús fílinginn og veit svona aðeins betur hvað ég er að fara að koma mér út í núna 1.febrúar:) Og þessar fjórar yndislegu konur sem ég vann með hugsuðu rosalega vel um mig og svo sá maður svona einstaka sætan unglækni á stangli... hmmmm, engin nöfn nefnd! .... þannig að þetta er búið að vera fínasta sumar! Trúi bara ekki að það sé að verða búið:(

En ég er á leiðinni í ferðalag um austurland á morgun og fram á laugardag takk fyrir með Önnupönnu og Sibbulibbu og er bara farin að hlakka til:) Og svo byrja ég að vinna á Laugarkaffi á mánudaginn... í bili allavega... veit svo ekki alveg hvert framhaldið verður ennþá8|8| en ég er búin að velta mér svo allt of mikið upp úr því hvað ég eigi að gera fram að jólum að nú segi ég bara "NO COMMENT"! Það kemur bara í ljós, það er eina sem ég get sagt, hehe. En allar tillögur eru samt vel þegnar ;)

Jæja, þarf að fara að pakka og svo að sofa,

bless bless og veriði hress

ekkert múður, bara slúður :) hehe, nú er ég hætt, en er að spá í að fara að leggja rímnalistina fyrir mig, hvað segiði um það?!!! :lol: bæó!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.08.2005 09:24:19 / Gyda

Ammælistjatt:)

Hæhæ og góðan daginn:)

Þá er ég mætt í vinnunna miðvikudaginn 17.ágúst og nú er ég orðin 22ja ára skal ég segja ykkur:D Já, maður er bara síungur, það er ekki að spyrja að því! Var nú svona líka myndarleg í gær og bakaði gulrótarköku og bananabrauð (maður er nú alltaf að hugsa um hollustuna;) ) sem við ætlum að snæða okkur á á eftir.  Kannski að ég geti unnið mér inn nokkur stig hjá læknunum í leiðinni, ja ef þetta er ætt þ.e.a.s.!

Og svo var sólskin og blíða þegar ég vaknaði í morgun eftir marga rigningardaga þar á undan. Það er víst merki um að ég hafi hagað mér vel á árinu 8|:lol: En ég lít frekar á það sem tákn um að þetta ár eigi eftir að verða mjög sólríkt í lífi mínu :D Já, ég lít allavega á framtíðina björtum augum þessa stundina og veit ég get breytt heiminum til hins betra og þó það verði ekki nema pínulítið á þessu tuttugastaogöðru aldursári mínu þá er takmarkinu náð:D:D

Ég kveð í bili með sól í hjarta og vona að það ríkji sól í ykkur hjarta líka :P

Veriði sæl og ekkert væl, dansiði polka og ræl með stæl 8) (hehe, ég samdi þetta alveg sjálf!)


» 7 hafa sagt sína skoðun

31.07.2005 22:05:12 / Gyda

Í fréttum er þetta helst.... tatataata!

Hæhæ krakkar mínir og fólkið gott.

Ég er með frábærar fréttir sem ég fékk núna á föstudaginn og er bara ekki að halda vatni yfir þeim! Ég er kominn inn í læknisfræði í háskólanum í Óðinsvé og byrja 1.febrúar 2006!!!!!!!!! :lol::haha::lol:8| Já vá maður, ég er ennþá ekki alveg að trúa þessu. Bjóst svona engan veginn við þessu en þetta er gjörsamlega frábært! Var nebbla ekki alveg að finna mig í henni Ameríkunni, fannst þetta svo alltof langt í burtu og svo finnst mér Ameríkanarnir á svo allt annari bylgjulengd heldur en ég og mér fannst ég ekki eiga samleið með þessu fólki! Þannig að ég held að ég sé loksins að fara að komast á rétta hillu í lífinu :D :D :D

Hins vegar veit ég ekki alveg ennþá hvað ég ætla að gera þangað til skólinn byrjar, kannski fer ég aftur til USA eða verð hér heima að vinna, hver veit?!

En svo verð ég að segja ykkur frá versló, var að koma af Neistaflugi á Neskaupsstað og það var algjör snilld. Það var þvílíkasta bongóblíðan í allan laugardaginn og svo var bara svo mikil stemming að tjalda og vera bara í útileigufílingnum :) Já, ég var allavega að skemmta mér mjög vel!  En já, þið segið þetta, nú verðið þið bara að kommenta og þá meina ég ykkur hin líka sem komið inn á síðuna mína og kommentið aldrei........ hmmmmmmmm........... engin nöfn nefnd, en já ég er að tala við ykkur!! :)

Okilídókilí, þá kveð ég í bili!

bless, bless

Gyða Danmerkurfari og verðandi læknir! :)


» 11 hafa sagt sína skoðun

25.07.2005 12:40:45 / Gyda

Hæjó!

Ætla bara að láta ykkur vita að ég er á lífi!  Sumarið er bara ekki tíminn til að vera í tölvunni allan liðlangann daginn, sérstaklega þar sem ég vinna fyrir framan tölvu 8 klst á dag! En það er mest lítið að frétt af mér, var í útilegu um helgina í Ásbyrgi og það var algjört æði. Er samt með smá merki frá góða veðrinu á öxlunum, ái, og í framan 8) Og svo er ég bara að bíða eftir svari frá Danmörku þannig að ég geti ákveðið hvað ég geri í haust... já og svo er ég bara að spá í versló, ætla jafnvel að fara á Neistaflug á Neskaupsstað... hvað segiði um það? já og hvað ætlið þið að gera um versló?! Komment óskast :D 

» 6 hafa sagt sína skoðun

07.07.2005 21:40:30 / Gyda

Kominn tími á blogg:)

Jæja, þá er kominn tími á blogg held ég bara. Þetta er náttúrulega búinn að vera hrikalegur dagur með öll hryðjuverkin og ég hef ekki hugsað um annað í allan dag, eins og allir örugglega. Ég þekki nú ekki marga sem eru í London núna, en Mæsa vinkona mín og Björg systir Önnu og Kalli vinur hennar eru öll þar, en þau eru sem betur fer öll heil af húfi. Var að lesa bloggið hennar Mæsu og hún var mjög nálægt því að lenda í þessu:| Vá hvað maður fer að hugsa hlutina upp á nýtt eitthvað þegar svona lagað kemur fyrir.

En já, svo ég tali nú um eitthvað annað, þá er ég bara heima á Akureyri í sumar og búin að vera vinna sem læknaritara á FSA núna í næstum 3 vikur. Það gengur bara vel, en er miklu erfiðara en ég bjóst við. Það er rosalega mikið að læra og svo er alltaf nóg að gera og ég er bara búin á því þegar ég kem heim á daginn. En þetta er samt gaman líka, gaman að vera að vinna í kringum læknana og allt þetta hámenntaða fólk og fá smá innsýn inn í þennan heim sem ég á nú eftir að vera hluti af í nánustu framtíð. Og svo er alveg hrikalega gott að vera heima! :D Ég er náttla ekkert búin að vera hér sl. 4 ár nema bara í fríum, en mér finnst Akureyri yndislegur bær og sveitin mín (Eyjafjarðarsveit) er ótrúlega falleg og svo eru bara hestar og kindur sem blasa við þegar ég lít út um stofugluggann og svo er svo friðsælt hérna:lol: Já, ég kann rosalega vel að meta þetta núna! Og svo skellti ég mér á golfnámskeið í síðustu viku og var að klára í dag og það er bara hrikalega gaman! Og svo ætla ég að kaupa mér kort í ræktina á morgun loksins og fara að gera eitthvað í þessu hliðarspiki8| það er nú kominn tími til:D Já og svo er mjög gaman að hafa tíma fyrir svona hluti sem maður hefur aldrei tíma fyrir, eins og t.d. að lesa. Var að byrja á Da Vinci lyklinum og svo ætla ég að fara að leggjast í eldamennsku og jafnvel smá prjónaskap!! :D Je minn einsati! Hvað er eiginlega að koma fyrir mig!! :) Og svo er náttla frábært að hafa alla gömlu góðu vinina í kringum sig, og maður er nú búin að skemmta sér aðeins í sumar og kíkja á kaffihús og svona. Og svo er plönuð ein útilega, alveg pottþétt!!

Jæja krakkar mínir, vona að þið njótið sumarsins og hafið það rosalega gott. Og það sem að ég er búin að læra í sumar og langar að deila með ykkur er að vera þakklát fyrir það sem maður hefur. Án djóks, eftir að ég kom að utan þá er ég hrikalega þakklát fyrir fjölskylduna mína og vini og bara það að hafa eldhús og mat í ísskápnum og sjónvarp og bara náttúruna og já íslenskuna! Fannst þetta allt svo sjálfsagt áður, en þetta er kannski ekki svo sjálfsagt eftir allt..... með þessum hugsunum kveð ég í bili8) Gyða


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5